Tvíund
Gjaldkeri
2024 - 2025
Bar ábyrgð á fjármálum Tvíundar, nemendafélag tölvunafræðinema í HR, og tók þátt í skipulagningu viðburða og daglegu starfi félagsins.
Frontend Developer & Data Engineer

Kristinn H.
Ég hef unnið að fjölbreyttum verkefnum bæði í námi og utan þess, þar sem ég hef fengið að takast á við raunveruleg vandamál og útfæra lausnir frá grunni. Þar hef ég unnið með framenda, bakenda og með gagnagrunna, ásamt því að tengja saman mismunandi kerfi með vefþjónustum. Ég legg áherslu á góða notendaupplifun og að tileinka mér nýja tækni þegar þörf krefur.
Ég hef kynnst allskonar tungumálum, kerfum og umgjörðum (e. frameworks). Hér eru þau helstu sem ég ef lært á í gegnum námið, vinnu og bras á eigin vegum. Sumt hef ég notað í stærri verkefnum frá upphafi til enda, en annað í minni tilraunum eða sem hluta af lausnum þar sem ég þurfti að kynna mér nýja tækni á skömmum tíma.
Þar hófst ferðalagið.
Byrjaði ungur að vinna með námi og lærði fljótt að bera ábyrgð.
Byrjaði á kassa og vann mig upp í vaktstjóra.
Stundaði nám á tölvubraut og byggði upp góðan grunn fyrir það sem tók við.
Vann í vöruhúsi með skóla og yfir sumrin.
Útskrifaðist úr Tækniskólanum. Af tölvubraut - hönnunarlínu.
Sá um tæknimál og útsendingar í fjölbreyttum verkefnum og viðburðum.
Byrjaði í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík.
Starfa á þjónustuborði UT og sem tæknimaður.
Sá um fjármál félagsins og kom að skipulagningu viðburða.
Sé um fjármál félagsins og kem að skipulagningu viðburða.
Erum að þróa vefappið Safe Space í samstarfi við Reon.
Klára BSc. í tölvunarfræði með áherslu á vef- og viðmótsþróun við Háskólann í Reykjavík.
Nýta færni og þekkingu til að vinna að tæknilausnum sem skiptir fólk máli.
Gjaldkeri
2024 - 2025
Bar ábyrgð á fjármálum Tvíundar, nemendafélag tölvunafræðinema í HR, og tók þátt í skipulagningu viðburða og daglegu starfi félagsins.
Fjármálastjóri
2025 - 2026
Sinni fjármálastjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík með ábyrgð á rekstri, áætlanagerð og eftirliti. Ásamt skipulagningu viðburða.
Ég heiti Kristinn og er 23 ára gamall. Ég útskrifast sem Tölvunarfræðingur úr Háskólanum í Reykjavík sumarið 2026 með áherslu á vef- og viðmótsþróun. Ég hef brennandi áhuga fyrir hugbúnaðargerð, allt frá hönnun og forritun yfir í vefþjónustur og gagnagrunna. Ég held með Arsenal í boltanum, mér finnst fátt skemmtilegra en að fara á skíði og að ferðast.




Ertu með verkefni í huga eða viltu bara segja hæ? Endilega hafðu samband.
Hafa samband