Til baka

Safe Space

Safe Space er hugbúnaður sem er upprunalega smíðaður af hugbúnaðarfyrirtækinu Reon. Ég ásamt fjórum hópmeðlimum er að vinna í að betrumbæta og klára fyrstu stóru útgáfu forritsins sem lokaverkefni í HR. Safe Space er vefapp sem styður teymi og teymisleiðtoga í reglubundnu mati og eftirfylgni með stöðu og líðan teymis.

Safe Space

Tæknistakkur

Next.js
TypeScript
Tailwind
Firebase
Figma

Ár

2026

Vandamálið

Tól sem taka stöðuna á líðan fólks eru oftar en ekki mjög þurr og leiðinleg mannauðstól sem lætur þér sem starfsmanni ekki alltaf líða eins og þú getir sagt frá hvernig þér líður í raun og veru. Eða að þér líði eins og þessar niðurstöður hverfi í svarthol og skili sér aldrei aftur niður til þín.

Það vantar svona tól sem setur þig sem venjulegan starfsmann í fyrsta sæti og er gert til að hjálpa þér að líða betur í þinni vinnu með þínu teymi.

Lausnin

Safe Space tekur svona kallaða 'bottom up' aðferð, það setur almenna starfsmanninn í fyrsta sæti og gerir upplifunina við að láta vita hvernig þér líður í vinnunni skemmtilega.

Safe Space virkar þannig að teymisleiðtogar bóka teymi á fund og setja tjékk í gang, þá taka teymismeðlimir upp símann og skanna QR kóðann sem birtist á skjánum. Þau gefa svo einkunn hvernig þeim líður í ákveðnum flokkum, alveg nafnlaust, og bæta við athugasemdum ef þau vilja ræða eitthvað ákveðið.

Eftir að allir hafa svarað, þá fer teymisleiðtogi yfir niðurstöðurnar og þá sér teymið strax hvernig heildar vellíðan teymisins er, og fær strax feedback. teymið er svo leitt í gegnum niðurstöðurnar af kerfinu og sjá trend í flokkunum og geta þá griðið inn í áður en eitthvað verður að vandamáli.


Myndir

1 / 5

Viltu sjá meira?