Til baka

Tvíund

Ný heimasíða fyrir Tvíund, nemendafélag tölvunafræðinema við Háskólann í Reykjavík. Þetta verkefni vann ég að mestu leiti sumarið 2024, þegar ég var nýlega kjörinn inn í stjórn félagsins.

Tvíund

Tæknistakkur

Next.js
TypeScript
Tailwind
Figma

Ár

2024

Vandamálið

Þegar ég byrjaði í tölvunarfræði í HR þá komst ég að því að nemendafélag tölvunarfræðinema var ekki með lifandi heimasíðu, sem mér fannst ekki nógu gott.

Þannig þegar ég var kjörinn í stjórn félagsins á 2. ári, þá tók ég það að mér að smíða glænýja heimasíðu frá grunni.

Ég vildi gera heimasíðu frá grunni og ekki með kerfum eins og Wordpress eða Wix eða álíka, heldur vildi ég gera vef sem við höfðum fulla stjórn á, án kostnaðar og sem væri auðvelt fyrir framtíðar stjórnir að viðhalda.

Lausnin

Og það var þess vegna sem ég lenti á þessum tæknistakk. Next.js er eitt mest notaða framenda framework í dag og það er mjög þægilegt að viðhalda vefum sem eru smíðaðir í því, ef grunnurinn er góður.

Í þessari grunn útgáfu af vefnum voru ekki mikið af breytilegum gögnum, þannig ég ákvað geyma það litla sem myndi breytast einu sinni á ári í JSON skrám, svo það væri auðvelt að breyta bara þeim skjölum og þá myndir vefsíðan uppfærast. Þetta voru gögn eins og upplýsingar um stjórnarmeðlimi og vörur í verslun.

Svo vorum við með listann af komandi viðburðum, það eru gögn sem breytast aðeins oftar, þannig ég leysti það með því að skrifa þau gögn í Google Sheets skjal og kalla í það skjal með Google API úr framendanum, og birta þá næstu 5 viðburði.


Heimasíðan í dag

Heimasíðan er í örlítið annarri myndi í dag, þar sem stjórnin sem tók við af mér ákvað að byggja ofan á grunninn sem ég smíðaði og taka síðuna skrefinu lengra, bæði með því að bæta við fítusum og aðlaga síðuna við rebrandið sem þau fóru í.


Myndir

Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
Tvíund vefsíða yfirlit
1 / 10

Viltu sjá meira?