Til baka

Cabio

Cabio er hugmynd af appi sem hópurinn minn hannaði í áfanganum Nýsköpun og stofnun fyrirtækja í HR. Cabio er beinagrind af bílaleigu appi sem er hægt að aðlaga að hvaða bílaleigufyrirtæki sem er. Cabio er Uber fyrir leigubíla, öruggt og notendavænt.

Cabio

Tæknistakkur

Figma

Ár

2025

Vandamálið

Vandamálið er að það er enginn almennilegur kostur þegar það kemur að því að bóka leigubíl án þess að hringja, hvað þá góður valkostur. Okkur fannst alveg út í hött að ekki væri til gott app til að bóka bíl, Hreyfill hafði þá reynta tvisvar og núna þrisvar, að gera app. En aldrei hitt í mark.

Ásamt því að vera ónotendavænt að bóka sér bíl, þá fylgir oft mikil óviss og óöryggi í því að taka leigubíl á Íslandi. Þú veist oftast ekki hvað ferðið á eftir að kosta nákvæmæega, og svo ætla ég ekki að fara út í hryllingssögurnar sem voru í fréttum fyrir ekki svo löngu síðan.

Lausnin

Við vildum leysa þessi vandamál með því að smíða app sem væri fyrst og fremst öryggt og notendavænt. Cabio er kerfi sem við myndum smíða og selja svo sem áskrift til leigubílafyrirtækja, og myndum við þá aðlaga útlit appsins eftir útliti fyrirtækisins.

En Cabio er meira en bara app, Cabio getur líka verið bókunarkerfið á bakvið tjöldin og sér í raun um allt ferlið frá A til Ö. Fyrirtæki geta notað Cabio til að séð allar ferðið sem bílstjórarnir þeirra fara, og haldið utan um allar bókanir og allar upplýsingar um bílstjóra og farþega.

Farþegar geta gefið bílstjórum einkunn og ummæli, og geta valið að samþykkja eða hafna bílstjórum sem kerfið mælir með útfrá þeirra prófíl og einkunn. Notendur sjá verðið á ferðinni áður en þau bóka bílinn og eru þar að leiðandi eins upplýstir og hægt er, til að auka öryggi og gagnsæi.

Hér fyrir neðan má sjá mögulega hönnun fyrir Cabio, aðlagað fyrir Hreyfil.


Myndir

Cabio Frumgerð 1
Cabio Frumgerð 2
Cabio Frumgerð 3
Cabio Frumgerð 4
Cabio Frumgerð 5
Cabio Frumgerð 6
Cabio Frumgerð 7
Cabio Frumgerð 8
Cabio Frumgerð 9
Cabio Frumgerð 10
1 / 10