Apera
Apera, Minni sóun - Meiri sköpun. Apera er markaðstorg fyrir atvinnumenn sem áhugafólk í kvikmyndargerðar- og myndbandagerðarbransanum, þar sem þau geta leigt út sinn eigin búnað þegar hann er ekki í notkun og leigt frá öðrum rétta búnaðinn fyrir ákveðið verkefni.

Tæknistakkur
Ár
2025Vandamálið
Það er engin svona lausn til á Íslandi í dag, umfram bara Facebook hóp, sem er langt frá góðri eða öruggari lausn.
Þessi hugmynd kemur frá vini mínum sem er í þessum bransa og er oft að lenda í því að þurfa ákveðinn búnað í verkefni sem hann á ekki sjálfur, og á ekki efni á því að fjáfest í honum fyrir bara eitt verkefni. Hann spyr þá í kringum sig en á oft erfitt með að finna aðila sem á búnaðinn.
Síðan á hann helling af búnaði sjálfur sem hann hefur keypt fyrir margar milljónir yfir árin, en hann notar aldrei allt sem hann á í hvert verkefni.
Lausnin
Okkur datt þá í hug hvað það væri mikil snilld ef það væri einhvers konar markaðstorg, sérhæft fyrir þennan markað, sem hægt væri að leiga þann búnað sem maður þarf fyrir tiltekið verkefni ásamt því að geta leigt út sinn eigin búnað sem er ekki í notkun eins og er.
Þessi lausn myndi leyfa áhugafólki að nota dýrann og flottan búnað fyrir sín passion project, sem þau myndu aldrei átt efni á að kaupa sjálf.
Þessu lausn myndi líka gera lengra komnum kleift að fjárfesta enn frekar í betri búnaði, þar sem þau geta borgað hann niður með því að leiga hann út í gegnum Apera.
Apera kemur inn sem öruggt og áreiðanlegt markaðstorg sem myndi vera platform fyrir auglýsingar á leiguvörum, þar sem notendur væru skráð inn með rafrænum skilríkjum og vottuð af fólki frá okkur til að koma í veg fyrir svindl og tryggja öryggi allra.
Apera myndi fylgja erlendu fordæmi og útvega samninga á milli aðila og bjóða uppá tryggingarpakka í samstarfi við tryggingarfélag, þar sem verið er að díla við rándýran búnað.
Myndir




